<$BlogRSDURL$>
     ____.       __                            .__ 
    |    | _=_=_/  |_ __ __  ____  __ _____  __|__|
    |    |/  _ \   __\  |  \/    \|  |  \  \/  /  |
/\__|    (  <_> )  | |  |  /   |  \  |  />    <|  |
\________|\____/|__| |____/|___|  /____//__/\_ \__|
                                \/            \/   
Monday, January 26, 2004
 
Sófaeinræðisherrarnir

Sífellt er maður að lenda í rifrildi við hina og þessa aðila sem gjarnan sjá eitthvað í sjónvarpinu eða lesa um eitthvað í Mogganum og segja svo "það ætti nú að banna þetta", eða "það ætti nú að vera skylda að gera svona". Þetta eru sófaeinræðisherrarnir, menn sem hafa ýmist athæfi samborgara sinna á hornum sér og vilja leysa vandamálin með því að banna þau.

Hvaða hluta frelsisins skilja þessir menn ekki? Skilja þeir ekki að það heyrir til málfrelsis manna að mega segja það sem þeim sýnist? Sófaeinræðisherranum er frjálst að vera ósammála, og ef hann vill ekki heyra eitthvað þá er honum frjálst að hlusta ekki. En það nægir honum ekki. Það verður að banna mönnum að segja það sem honum líkar ekki. Skilja þeir ekki að það heyrir til athafnafrelsis að þurfa ekki að lifa eftir lífsskoðunum annarra? Skilja þeir ekki að það eru grunnréttindi hvers manns að fá að ráða eigin athöfnum, að kjósa sér viðurværi og ráðstafa afurðum þess eftir eigin höfði? Nei, það nægir ekki sófaeinræðisherranum, því hann hefur skoðun. Skoðun sem allir verða að virða. Sófaeinræðisherrann hefur ákaflega sterkar skoðanir á hlutunum og veit mætavel hvað er öllum öðrum fyrir bestu. Þess vegna er hann alltaf snöggur að stinga upp á því að það skulu sett lög gegn því að vera sér ósammála, og gegn því að menn athafni sig í óþökk sófaeinræðisherrans.

Comments: Post a Comment

Powered by Blogger