____. __ .__
| | _=_=_/ |_ __ __ ____ __ _____ __|__|
| |/ _ \ __\ | \/ \| | \ \/ / |
/\__| ( <_> ) | | | / | \ | /> <| |
\________|\____/|__| |____/|___| /____//__/\_ \__|
\/ \/
| | _=_=_/ |_ __ __ ____ __ _____ __|__|
| |/ _ \ __\ | \/ \| | \ \/ / |
/\__| ( <_> ) | | | / | \ | /> <| |
\________|\____/|__| |____/|___| /____//__/\_ \__|
\/ \/
Tuesday, January 13, 2004
Statismi lifir góðu lífi í Vermont
Samkvæmt Rutland Herald, 9. Janúar 2004 hyggja bæjarbúar Killington í Vermont á að kjósa um hvort bærinn segi sig úr Vermont ríki og verði hluti af New Hampshire. Samkvæmt fréttinni eru bæjarbúar þreyttir á því að vera skattlagðir um tífalt það sem ríkið eyðir í umbætur í bænum. Árlega greiða íbúar Killington 10 milljónir dollara í skatta en ríkið eyðir þeim peningum að mestu annars staðar.
"We have no rights, we have no justice, no representation. We're being used as a cash cow to support others." sagði David Lewis bæjarstjóri.
Bæjarstjórn er í fúlustu alvöru að íhuga að lýsa yfir úrsögninni ef samstaða næst um málið meðal bæjarbúa. Ríkisstjórn New Hampshire hefur lýst yfir áhuga á málinu en segist lofa engu. Svar ríkisstjórnar Vermont var öllu skuggalegra.
"This is symbolic, clearly," sagði Deborah Markowitz ráðherra. "Absent an armed insurrection type of thing, there isn't anything a town can do to secede. A town is a construction of the state and exists at the pleasure of the Legislature."
Sem sagt, bæjarbúar Killington hafa ekki áhrif á eigin örlög né fá neinu ráðið um landareignir sínar nema með vopnavaldi. Ríkið, en ekki bæjarbúar sjálfir, byggði og á bæinn samkvæmt Markowitz. Með öðrum orðum eru íbúarnir ekki staddir á eignum sínum í rétti, heldur í góðfúslegu leyfi löggjafans. Þannig að ef löggjafanum þóknaðist það þá mætti jafna Killington við jörðu.
http://rutlandherald.nybor.com/News/Story/77067.html
Comments:
Post a Comment




